10 september 2007 

Nýtt blogg: setrið.bloggar.is

Allt er breytingum háð. Nú þegar við Sigríður höfum gift okkur höfum við ákveðið að sameina bloggsíður okkar, lesendum okkar til hagræðis. Kannski verður það líka til þess að ég sé duglegri að skrifa. Samfylgd minni með hinu ágæta blogg umhverfi blogger líkur því hér með.

Slóðin á nýju síðuna er setrid.bloggar.is

24 ágúst 2007 

Í sumarfríi, fór til Íslands, gifti mig, er í Genf og á leið til Parísar

Langur titill en passar vel. Margt hefur á daga mína drifið frá því að ég skrifaði síðast pistil hér á síðuna. Í lok júlí byrjaði ég í eiginlegu sumarfrí sem mun standa til 15. september nk. Það hófst með för frá Genf til Íslands. Það var yndislegt að hitta Siggu aftur og fjölskylduna alla, sérstaklega og í fyrsta skipti bróðurdóttir mína hana Ásdísi Lind og bróðurdóttur Siggu, hana Guðrúnu Ingu, sem fæddust í maí og júní.

Þann 11. ágúst anno domino 2007 kvæntist ég henni Siggu minni með pompi og prakt í Valþjófsstaðarkirkju að viðstöddu nokkru fjölmenni. Veislan á eftir var síðan stórskemmtileg og tóku nokkrir bráðskemmtilegir til máls. Boðið var uppá forrétti úr rammíslensku hráefni - hrátt hangikjet á ýmsa vísu, reyktur silungur, grafin lax og hreindýrapaté. Í aðalrétt var svo rammíslensk kjötsúpa, og í eftirrétt rammíslensk rjómaterta (hnallþóra) og kransakaka (m.a. fyrir marsípangrísinn mig). Brúðkaupsnóttinni var svo varið í guðsgrænni náttúrunni.

Tæplega viku, eða þann 17. ágúst fórum við Sigga svo með beina fluginu frá Egilsstöðum til Kaupmannahafnar og þaðan rakleiðis áfram til Genfar. Þar höfum við dvalið síðustu daga og fer ljómandi vel um okkur. Mest höfum við verið í borginni sjálfri en síðasta sunnudag fórum við ásamt Ragnari vinnufélaga og Þórunni konunni hans til Chamonix, sem er fjallaþorp við rætur Mont Blanc. Þar keypti Sigga sér meðal annars góða gönguskó, svona ef hún vildi skreppa á toppinn! Á dögunum skruppum við einnig í mikin hjólreiðartúr um sveitir Genfar kantónu og í gær fórum við til Nyon sem er fallegur bær meðfram Genfarvatni sem Júlíus Sesar stofnaði.

Á mánudaginn erum við svo á leið til Parísar í tæplega þrjá daga og þaðan fljúgum við til Kaupmannahafnar og tökum svo lestina til Esbjerg, því bráðum byrjar skólinn hjá Siggu.

Þessi pistill er bara til að fólk viti hvar við erum og hvað við erum að gera. Á morgun skrifa ég um eitthvað meira skemmtilegt.

10 júní 2007 

Það sem framundan er

Nú færist för til Íslands nær. Ég á bókað flug þann 31. júlí nk. Það verður ljúft að stíga á fljótsdælska grundu, hitta fjölskylduna, litlu bróðurdóttir mína, litlu bróðurdóttir Siggu, og rúsínan í pylsuendanum verður svo auðvitað brúðkaupið þann 11. ágúst. Við Sigga förum svo aftur erlendis þann 17. ágúst.

Það liggur fyrir að ég hef verið ráðinn til áframhaldandi starfa hjá utanríkisþjónustunni, við fastanefndina í Genf frá 15. september þangað til marsloka á næsta ári. Ekki er því að neita að um frábært tækifæri er að ræða fyrir mig að hafa áfram aðgang að þessum reynslubanka. Hvað svo verður í framhaldinu er óráðið, en fyrir liggur að ég á eftir að ganga menntaveginn aðeins lengur.

Mamma er farin að mála nýja húsið þeirra foreldra minna að innan og styttist því óðfluga í að þau flytji frá Valþjófsstað. Þegar ég kem heim í ágúst verð ég því að láta mér nægja að skreppa þangað í heimsókn til Fúsa bróðir, sem er að taka við búinu, og að horfa yfir ánna á æskuslóðirnar því svo heppilega vill til að nýja húsið er hinu megin í dalnum!

09 júní 2007 

"Stanslaus samba" eða "Hundur kemst í sætindi"

Frönskubekkurinn minn er er fjörugur og samheldin bekkur. Í gær fórum við nokkur stykki saman að leita að lifandi tónlist á öldurhúsum bæjarins. Fyrst varð á leið okkar brasilískur bar í rauða hverfi borgarinnar (konur næturinnar sóttu þó ekki þennan stað). Þar voru tveir miðaldra karlmenn sem léku á hljóðfæri og þöndu raddböndin svo úr var ágætis samba taktur. Eftir að hafa bragðað bjórinn á staðnum fluttum við okkur yfir á annan stað nálægt elsta hluta bæjarins þar sem leikinn var samskonar tónlist og bjórinn kannaður. Þar var samban öllu bragðmeira og bjórinn líka. Skemmtileg tónlist samba og sýnt að það sem tveir Brasilíubúar koma saman þar er dans.

Ég var á gangi niður í bæ í dag. Það var heitt í miðdegissólinni en margt fólk á ferðinni. Einhvernsstaðar á leiðinni sé ég hvar kemur álengdar á móti mér hugguleg stúlka sem var ákaflega upptekin við að tala í farsíma og sjúga sleikjó. Á eftir sér teymdi hún svo allstórann hund í bandi, eflaust í eigu hennar. Eitthvað krafðist umræðan þess að stúlkan tæki útúr sér sleikjóinn og í hugsunarleysi heldur hún honum í hendi sér niður með síðu á meðan hún lét móðan mása. Sá ég þá hvar hvuttinn laumast lævísislega uppað hendinni og ofurnákvæmt smellti tungunni á sleikjóinn nokkrum sinnum án þess að stúlkan tæki eftir. Á þeim tímapunkti lauk símtalinu, og eins og ekkert hefði í skorist skellti stúlkan sleikjunum aftur uppí sig og hélt áfram sem leið lá! Ég hryllti mig og kímdi áður en ég hélt för minni áfram, að vonum ánægður með þetta krydd í tilveruna.

30 maí 2007 

"Í Esbjerg í fyrsta sinn" eða "Atvik í skóbúð"

Ég kom til Esbjerg á laugardaginn var, eftir að hafa flogið til Kaupmannahafnar og tekið lestina þaðan. Sigga mín tók á móti mér og voru það fagnaðarfundir enda höfum við ekki hist síðan í Hamburg um daginn.
Á sunnudaginn vorum við mest í rólegheitum en hjóluðum aðeins um nágrennið og fengum okkur rölt í miðbænum, en þar stóð yfir þrírautarmót. Á mánudaginnn fórum við svo í 16 km hjólreiðatúr þar sem við sáum meðal annars styttur af fjórum mönnum sem horfa til hafs og eru þær einskonar kennileiti Esbjerg. Það var hressandi að þeysa á fáknum um danska grundu, svona "Tour de Esbjerg", en eitthvað fann ég nú til harðsperra í afturendanum í gær.

Í gær skrapp ég svo niður á göngugötu bæjarins í búðarrölt, því Sigga var í skólanum. Vandraði meðal annars inn í skóbúð eina og sá þar ágætis sandala sem mig langaði í og bað afgreiðslustúlkuna um að sækja númerið mitt. Á meðan ég bíð teygi ég mig eftir öðrum skó, svona bara til að skoða en ekki vill betur til en að þegar ég legg hann frá mér aftur rek ég mig þéttingsfast í efstu hilluna, sem var úr gleri. "Krasss!" Hillan, sem var úr perlugleri, brotnaði í þúsund mola og þarna stóð ég eftir, umkringdur glerbrotum, í hárinu, á öxlunum í brjóst vasanum á jakkanum og ég veit ekki hvað. Afgreiðslustúlkunni brá svona nett þegar hún kom aftur með rétta skónúmerið - ég stóð þarna eins og illa gerður hlutur og vissi eiginlega ekki hvað ég átti að gera. Hún tók loks af skarið, tók jakkann minn og fór með hann og dustaði. Á meðan beygði kímin dönsk húsmóðir sig yfir að mér og sagði: "Det så jo lit ud som i en aktion film!". Það fékk mig til að brosa aftur.
Til að bæta svo gráu ofan á svart pössuðu skórnir ekki og ekki heldur númerið fyrir ofan. Ég afsakaði mig pent, og fór - leið hálfkjánalega að hafa lagt búðina í rúst og ekki keypt svo mikið sem skóhorn.

25 apríl 2007 

Tíminn stöðvaðist

Já, tíminn stöðvaðist í fyrradag. Úrið mitt er batteríslaust.

18 mars 2007 

Bílasýning, þinglok og páskar

Ég fór á bílasýningu í morgun með Lasse sem vinnur hjá finnsku fastanefndinni, og þúsundum annarra. Það var ansi gaman að skoða nýjustu módel bílaframleiðendanna, hvort sem um var að ræða BMW, Porsche, Jaguar, Mercedes, Audi, Bentley eða bara Lödu! Það er ákaflega gagnlegt að hafa svo margar tegundir bíla á einum stað ef maður er að hugsa um að kaupa sér einn slíkan, en fyrir mig, sem sé ekki fram á slíka fjárfestingu í nálægri framtíð, jaðraði þetta við sjálfspíningu.
----------
Alþingi lauk í gær. Mörg góð mál fóru í gegn, en því miður lágu mörg góð mál einnig eftir. Vonandi mun nýtt Alþingi vinna að þeim góðu málum burtséð frá því hvaða flokkar verða við stjórnvölin. Sérstakur léttir var þó að lög um Vatnajökulsþjóðgarð skyldu ná fram að ganga og ljóst að þessi nýji þjóðgarður mun verða land og þjóð til heilla, svo ekki sé talað um þær byggðir sem þarna eiga land að ef rétt er haldið á málum.
---------
Það er kannski lengra í páskana en mér finnst, en þar sem ég verð í fríi frá 30. mars og fram yfir páska, og að Sigga ætlar að koma til mín, þá finnst mér eiginlega bara ekkert langt fram að páskum.

17 mars 2007 

Einn og hálfur mánuður í Genf

Mér finnst eins og ég hafi komið til Genfar í síðustu viku, en engu að síður eru þetta orðinn einn og hálfur mánuður. Ég er búin að læra ótrúlega margt á þessum tíma og veit að það er einungis forsmekkurinn.
Lífið hefur mest snúist um vinnuna síðustu daga. Fór þó til Bernar um síðustu helgi og fékk mér spássitúr í gamla bænum þar, og gaf björnunum. Kvöldin í vikunni sem leið voru svo að mestu utan íbúðarinnar minnar þar sem mér var tvívegis boðið í mat, fór í móttöku og einu sinni út að borða. Allt var þetta með frekar stuttum fyrirvara, og passaði illa við vikuinnkaupin sem ég hafi gert helgina áður.
Því er ekki að neita að vorið, ef ekki sumarið, er komið. Í dag var 15 stiga hiti og sól. Ég fékk mér hressingargöngu og held barasta að ég hafi tekið lit. Það ætti því að vera orðið notalegt hérna þegar Sigga kemur til mín um páskana, í byrjun apríl.
Á morgun er svo stefnan tekin á eina stærstu bílasýningu Evrópu sem stendur yfir í Genf þessa dagana.

26 febrúar 2007 

Þvottur, rigning, sushi og Framsókn (nema hvað?)

Ég þvoði þvott á miðvikudaginn í fyrsta skipti í almenningsþvottahúsinu hérna í Paquis. Var auðvitað eins og álfur útúr hól og var búin að sannfæra mig um að ég skyldi ekki leiðbeiningarnar sem voru á frönsku, og starði svo bara á þessar sem voru á ensku og horfði til skiptis á þvottavélina og þvottinn. Þá kom ákaflega elskulegur hommi þarna og leiddi mig í allan sannleikan um hvernig ætti að gangsetja vélina - svo ég þurfti ekki að fara út á götu til að fá ráðgjöf hjá konunum sem þar halda til. Á meðan ég þvoði kom svo sjötugur klæðskiptingur að heimsækja hommann.
-----
Það rigndi alla helgina, svo ekki var hundi út sigandi. Ég fór ekki út heldur. Hafði farið í IKEA á fimmudaginn með Þorbirni vinnufélaga og keypt mér hægindastól og leslampa. Nú er litla stúdeó-íbúðin mín bara orðin nokkuð þægileg.
-----
Í dag var ég á fundum niður í Alþjóðaviðskiptastofnun. Fór á hádegisfund hjá Fastanefnd Japan. Auðvitað var sushi. Verður það nokkuð meira upprunalegt?
---
Ég veit ekki hvort ég á að gleðjast eða gráta yfir því að Framsóknarflokkurinn hafi tvöfaldað fylgi sitt í nýjustu skoðunarkönnuninni. Svo sem jákvæð þróun, en gefur til kynna hvað þetta var orðið dapurt. Ef aftur verður talað um að fylgi flokksins hafi tvölfaldast í næstu könnun, fer hins vegar að hýrna yfir manni að nýju.

12 febrúar 2007 

Olíusamráðsmálið - frávísun forstjóramálsins

Ekki ætla ég að deila við dómarana í þessum pisli í kjölfar þess að Héraðsdómur Reykjavíkur hefur vísað máli olíuforstjóranna frá. Hins vegar finnst mér að það sem þeir gerðu eigi að vera refsivert fyrir þá auk þess sem það á að refsa fyrirtækinu sem þeir unnu fyrir.
Það er nú þannig að þegar fyrirtækið er sektað fyrir samkeppnisbrot þá bitnar það á eigendunum, sem þannig rýrir eign þeirra eða hagnað. Forstjórar þeirra, nema þeir séu eigendur líka, verða því ekki fyrir neinni refsingu nema hugsanlega álitshnekki. Þegar öllu er á botninn hvolft þá eru það mennirnir á ákveðnu stigi sem ákveða að fremja hinn refsiverða verknað. Þessum mönnum á að refsa. Fái þeir skipun um að fremja hið refsiverða brot verða þeir sjálfkrafa vitorðsmenn taki þeir þátt í því. Hafa ber þá í huga að forstjórar eru oft á árangurstengdum greiðslum, tengt hagnaði, eða eru hluthafar og eiga því hagsmuna að gæta. Þannig getur það verið auðgunarbrot. Þeir geta ekki varpað ábyrgðinni á fyrirtækið. Það fremur ekki brot sjálft.
Mér finnst því frumvarp viðskiptaráðherra um refsiábyrgð stjórnenda fyrirtækja vegna samkeppnisbrota orð í tíma töluð og styð það heilshugar. Þegar saman leggst að menn hafi framið brot á samkeppnislögum og auðgunarbrot beinlínis í eigin þágu þá finnst mér 6 ára fangelsi ekki of mikið.
Hvað hafa þeirra líkir haft mikið fé af almennum borgurum með háttsemi sinni? Ja, maður spyr sig.

Um mig

  • I'm Ingólfur Friðriksson
  • From Fljótsdalur, Iceland
  • Fljótsdælingur með B.A. í lögfræði. Er við starfsnám hjá Fastanefnd Ísland í Genf.
My profile

Tenglar

Lögfræði

Samnemar á Akureyri

Að austan (á einn hátt eða annan)

Geymslan

Powered by Blogger
and Blogger Templates